Áttu kaffi?

Áttu kaffi?

25.01.2007 12:02:16 / koral

slóðir

Endilega kíkið á og tjáslið um myndirnar sem ég setti inn í gær

Myndir af Heiðari á 123.is/huja

Snjór og sjóleysi laekjartun.blogspot.com


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 16:56:58 / koral

Ég þoli ekki netið

Ég er búin að setja inn nokkrar myndir á myndasíðuna okkar og var búin að setja inn margar aðrar en svo þegar ég ýtti á publish þá kom bara this page can not be displayed og svo núna kemst ég ekki einu sinni inn á hana. ARGGGGG

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 15:53:37 / koral

Hann er 3 í dag en 4 á morgunn

Jæja haldið að það sé ekki kominn tími á smá blogg.

 

 



Viggi er búinn að vera vinna hjá Pólnum á Ísafirði núna frá því í október, ekki stanslaust en c.a. 75 % af hverjum mánuði nema þegar hann fór til Dísu og Stjána.

Við fórum með honum vestur næst síðustu vikuna í nóvember og það var bara gaman. Það er eitthvað við Ísafjörð sem heillar.

Viggi fór vestur í gærmorgunn og reiknar með því að koma aftur heim á fimmtudagskvöldið. Jón byrjaði í aðlögun á leikskólanum á mánudaginn fyrir 2 vikum og það var fyrst í gær sem ég fékk að vera heima 8-2, það var bara vegna þess að Viggi skutlaði þeim. Ég fór með þá í morgunn og vorum við komin snemma (til að vera á undan mestu vörgunum, nefni engin nöfn), Ása greip hann og fór með hann að horfa á Heiðabæjarbræðurna salta/sanda planið. Það virðist hafa verið allt í góðu því ekki hringdu þær.

 

 



Stóri strákurinn minn verður fjögurra ára á morgunn og fórum við áðan og keyptum íspinnana sem hann ætlar að taka með á leikskólann á morgunn, hann ætlar líka að gefa öllum blöðru. Hann hlakkar svo til. Áðan þegar við komum heim hjóp hann strax inn í herbergi til að finna sparigallabuxurnar og spariskyrtuna og bindið bara svo það verði örugglega tilbúið í fyrramálið. Honum finnst svo gaman að vera í skyrtu og ég tala nú ekki um að vera með bindi. Hann var með bindi nánast öll jólin.

 

 



Jón Haukur er farinn að segja mamma og bíll, svona þannig að allir skilji en ekki bara við.

Það er þorrablót hér á laugardaginn og verða Skógarpúkarnir að spila á ballinu. Við ætlum ekki að fara.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 17:34:09 / koral

Jeeeeminnnnnnn eini

Ég er enn með Jón Hauk í aðlögun á leikskólanum, byrjaði á mánudag í s.l. viku, guði sé lof að ég er ekki í neinni vinnu. Leikskóla kennararnir gera mismikið til að hann vilji vera eftir, en ég fer ekki út í það hér.

Það sem ég vildi sagt hafa er eftirfarandi:

Elsku pabbi til hamingju með afmælið:haha: og hafðu það sem best í dag og alla daga. Mundu eftir að hvíla þig vel því ég hef heyrt að það sé erfitt að vera bæði afi og kominn á sextugs8| aldurinn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 12:19:32 / koral

Barnalán

Jæja þá  hefur bæst við eitt barn í sveitina heima.  Leifur og Systa eignuðust stúlku s.l. nótt og heilsast öllum vel. Stúlkan er að mig minnir 14 merkur og 51 cm.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 14:02:41 / koral

Gleðileg jól

Já gleðileg jól góurnar mínar.

Það eru komnar nokkrar myndir inn á laekjartun.blogspot.com síðuna síðan í gær.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 21:19:53 / koral

Myndir......

Ég var að setja inn myndir af keramikinu sem ég er búin að mála, það er á laekjartun.blogspot.com

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 17:53:26 / koral

Þá kom ágúst með strá kúst........

Sæl öll sömul.

Ég er að reyna að muna texta eftir Kristján Hreinsson en það gengur hægt. Það er talað um spriklandi á Grikklandi, í námunda við ámunda, þá kom Ágúst með strákúst,bleikan fíl í  kassabíl......Hvað kom svo og hvað heitir lagið?????


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 17:11:51 / koral

Jóla jóla

Ömmu bakstur - Jólakaka!

1 bolli vatn

1 bolli sykur

4 stór egg

2 bollar þurrkaðir ávextir

1 teskeið bökunarsódi

1 teskeið salt

1 bolli púðursykur

1 bolli sítrónusafi

1 bolli hnetur

1 FULL flaska af Grand

Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra skál. Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál. Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær skurnir og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum.

 Hrærið á kveikivélinni. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga magnið. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama. Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum. Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur. Farið að sofa. (Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur góðar?).


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 15:00:39 / koral

Skildi það vera jólahjól........

Jæja þá er ég kominn aftur. Við skruppum til mömmu á laugardaginn s.l. það var sláturslútt í Bjarkalundi um kvöldið. Maturinn var svoooooo góður að það var ótrúlegt. Það var reykt hrefna í forrétt, lambakjöt með bláberjasósu og grænmeti í aðalrétt og blandaður ís með súkkulaðisósu í eftirrétt, það var að sjálfsögðu hægt að fá sér ábót á kjötinu og fengu sumir sér oftar en einu sinni þ.e.a.s. ábót.  Dísa tók myndir eins og vitlausmanneskja þannig að það er eins gott að hún fari að setja nýtt inn á bloggið hjá sér.     Pabbi passaði strákana og gekk það eins og í sögu. Við fórum með mömmu, Svenna og Ingu og fengum þar af leiðandi að sofa út á sunnudaginn. Ég var meö skelfilegan höfuðverk seinnipartinn á sunnudaginn og aðfaranótt mánudagsins og allan daginn í gær. Ég held að þynnkan hafi komið svona gasalega seint hjá mér. Okkur Vigga tókst að stúta 2 rauðvínsflöskum með matnum og svo fékk ég mér tequila Stefáni frænda og Hönnu úr búðinni til samlætis. Annars var bara hlegið og hlegið og aftur hlegið, ég held að ég sé enn með smá strengi í maganum út af því.              Jón Egill frá Skerðingsstöðum á fellsströnd var veislustjóri og var hann með smá annál um hausti, það borgar sig að vinna einn því það var ekki minnst á mig í honum,sem betur fer var enginn vitni þegar sápubrúsinn sem er settur á smúlinn sprakk framan í mig, það var ekki mjög gaman.

Annars var bölvað rok á sunnudaginn, við á vestfjörðunum sluppum nú betur en margir aðrir. Það hafði reyndar rignt inn um gluggana í stofunni hjá okkur þannig að parkettið þar er ónýtt. Tryggingarnar vilja nátturulega ekkert gera í þessu, segja bara að þetta séu gallaðir gluggar og ef við ætlum að fá eitthvað bætt þá eigum við bara að fara í mál við smiðina. Það er svo þægilegt þegar smiðirnir sem byggðu húsið eru mágur minn, fyrrverandi mágur, dæmdur kynferðisafbrotamaður og látinn.  Ekki allt í einum manni  jæja nóg tuð, var að ákveða desertinn fyrir aðfangadagskvöld. Ég er alltaf svo snemma í þessu.      Er að fara niðrí Bragga það er bókamarkaður og jólanammimarkaður og ég er að fara að versla. Ble ble


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 11:30:43 / koral

Friðrik og Bríet

Friðrik 3 og 1/2 árs og Bríet 5 ára

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 11:12:11 / koral

Það er rok og kalt á Ströndum í dag.

Jæja er ekki kominn tími á að láta vita aðeins af sér Það er nú ýmislegt búið að gerast hjá okkur síðan 10.júlí. hummhummhumm .

Ég fór til mömmu í september og ætlaði að fá vinnu í sláturhúsinu en náði mér þá í mitt árlega pensilín hóstakvef. Það tók nú um 2 vikur að losna við það. Svo gat ég loks farið niðreftir að þrífa, byrjaði að þrífa með Hildi dóttur Hilmars í Skuld, svo var ég ein í rúma viku, ekki er það nú gaman en það þýðir meiri pening fyrir mig.

Ástæðan fyrir því að ég fór til mömmu var sú að Viggi fór að vinna á Ísafirði í 4 vikur og ekki nenntum við drengirnir að vera ein heima svo lengi. Svo þurfti mamma að fara suður á Reykjalund þannig að ég missti vinnuna ásamt barnapíunni. Viggi kom vestan að fyrir 2 vikum og var þá fyrri vikuna í Reykhólasveitinni og þá seinni hér heima, en svo fer hann aftur vestur í dag.

Það gengur ágætlega enn þá á leikskólanum hjá Friðrik en það er nú bara tímaspursmál hvenær hann verður leiður. Föstudagarnir eru skemmtilegastir því þá fara þau upp í íþróttahús í leikfími 1 klst. í senn, þ.e.a.s. eldri deildin. Jón er ekki enn búinn að fá tilkynningu um pláss en ég býst nú heldur ekki við því fyrr en á vor mánuðum.

Við erum loksins búin að kaupa gólfefni á öll herbergi hússins. Settum á gólfið hjá Friðrik fyrir 2 árum og keyptum svo alveg eins parket núna til að setja á rest, það er svona eikar plastparket, smellu. Þannig að pabbi verður örugglega hérna næstu helgar að saga og smella.

Svo fór dempari í subarunum og pabbi og Viggi ætluðu að skipta í morgun en þá var dempara gúmmíið ónýt líka og ekkert fylgdi þessum 53.000 kr dempara, þannig að pabbi er núna á leiðinni yfir Tunguheiði að ná í gúmmi heim til sín. Það sem hann gerir ekki fyrir okkur. Ekki get ég verið bíllaus alla næstu viku, ónei ónei.

Er ekki einhver læknir þarna sem les þetta........Jón Haukur er nefnilega búinn að vera alveg ómögulegur s.l. vikuna. Hann borðar sama sem ekkert, drekkur voðalega lítið, sefur illa á daginn (sefur bara á nóttunni því hann er svo vel stílaður) búinn að vera með hita, 38.6 á mánudaginn, 36.9 á þriðjudaginn, 39.7 á miðvikudaginn, 38.4 á fimmtudaginn svo eyðilöggðu þeir mælirinn og ég hef ekki getað mælt hann síðan, en hann hefur ekki verið neitt heitur. Svo grenjar hann í tíma og ótíma. Plííííís segið mér að þetta sé bara eðlilegt og sé út frá tanntöku þó að það sjáist reyndar engin ný tönn.

Stærstu fréttirnar eru nú af Svenna og ekki af betri gerðinni. Honum tókst svo snildarlega vel til á þriðjudaginn s.l. að velta Hiluxinum, í brekkunni fyrir vestan Kamb, þar lenti hann lengst út í móum. En hann rölti sér nú niður að Kambi og Ingibjörg kom og fylgdi honum ásamt sjúkrabíl í Búðardal. Þar var hann saumaður saman held með kontorsting, þá datt niður hjá honum blóðþrystingurinn og var ákveðið að fara með hann suður, þyrlan kom á móti sjæukrabílnum upp í Borgarnes. Svo kom í kjós eftir fullt af myndartökum að 4 hryggjaliður hafði brotnað.

Honum var sleppt út að sjúkrahúsinu á fimmtudaginn og hann og mamma spörkuðu ömmu Sollu út úr íbúðinni sinni og þar eru þau í slökun eftir þetta allt saman. Það á að taka saumana nú eftir helgi en hann á að mæta í skoðun og myndatöku eftir um það bil viku. Þannig að Svenni er orðinn að Reykjavíkur rottu, eins og honum finnst “gaman” að húka fyrir sunnan. Friðrik Heiðari finnst þetta stórmerkilegt og hlakkar mikið til að hitta afa Svenna, aðallega til að fá að vita hvernig er að fljúga í þyrlu. Svo er líka aðal málið að afi Svenni kaupi sér ný dekk, skítt með það að hann þurfi að fá nýjan bíl, aðallega að kaupa ný dekk.

 Jæja best að hafa þetta ekki lengra að sinni, best að vera ekki með með neinar yfilýsingar um hvenær næsta blogg kemur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 09:48:45 / koral

Hér er ég...

Já Halla það var alveg rosalega gaman á hamingjudögum....allaveganna hjá okkur þar sem við vorum í Skotlandi ;)eins og Ólína. Skemmtum okkur alveg gríðarlega vel.

Í gær var fyrsti dagur án rigningar síðan við komum heim, og þá var rokið út í pallaframkvæmdir eða þar til pallaefnið kláraðist. Inga kom norður í gær og ætla ég að nýta mér hana eitthvað í júlí, svona upp í visareikninginn.......

Annars vil ég óska mér og Vigga til hamingju með daginn, en í dag svona um kl. 14:30 eru 7 ár síðan við giftum okkur...:haha: :haha:

Já og eitt enn Jón Haukur er byrjaður að labba, og segja eftirfarandi: bambi eða bangsi, boff boff eða voffi, vrrraa vrra eða bra bra, daddi eða pabbi og að sjálfsögðu mamma.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 23:45:47 / koral

Hún á afmæli í dag.......

Það er svo langt síðan ég bloggaði að ég mundi varla lykilorðið. Elsku MAMMA til hamingju með afmælið, vonandi hafðir þú það gott á Brekku í dag því ekki þýðir að sitja ein heima á afmælinu sínu. Billi mágur á líka afmæli í dag til hamingju með það, úff ekki nema ár þangað til þú verður fimmtugur, sem þíðir að það eru bara 7 mánuðir þar til pabbi verður fimmtugur. Við fórum í skírn hjá Stefáni og Báru á laugardaginn og var hann skírður Sumarliði, og svo bætist við síðar, þegar mannanafnanefnd kemur úr sumarfríi, Gilsfjörð. Þannig að stóri strákurinn á Gróustöðum heitir Sumarliði Gilsfjörð Bjarkason. Við erum að rífa sólpallinn hjá stofunni og klára pallinn frá eldhúspallinum sem tengist svo nýja stofupallinum. Erum aðallega að skipta um efni á honum. Búin að henda 93,5% af því sem var í kjallaranum, og erum að byrja að undirbúa málningu þar. Þannig að það er nóg að gera. Jón Haukur er loksins búin að læra að vinka bless, kyssa og knúsa þegar maður biður um knús. Ekki er hann farin að segja neitt af viti nema MAAAAAAMMMMMAA með þvílíkum hátíðni hljóðum að það er ekkert venjulegt. Jæja best að fara að koma sér í bælið og ´hvílast vel í nótt til að vera tilbúin í átök letinnar á morgun.

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 18:22:56 / koral

Hver á að gera hvað?

“ Þetta er ekki mitt verksvið”

 

 



Sagan er um fjóra menn sem heita Sérhver, Einhver, Hver-sem-er og Enginn.

Það þurfti að vinna áríðandi verkefni og Sérhver var viss um að Einhver mundi gera það. Hver-sem-er hefði getað gert það en Enginn tók sig til og gerði það. Þá varð Einhver reiður þar sem þetta var í raun á verksviði Sérhvers. Sérhverjum fannst hins vegar að Hver-sem-er gæti vel gert það en Engum var ljóst að Hver-sem-er myndi aldrei gera það. Þetta endaði svo með því að Enginn gerði það sem Hver-sem-er hefði getað gert.

 

Fann þetta á gömlum snjáðum miða ofan í skúffu. Amma Huja klippti þetta út úr einhverju blaði fyrir mörgum árum bara varð að setja þetta hér inn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14